Ferðabílar með SUMARPÖKKUM
Mitsubishi verður á ferð og flugi í allt sumar með Bylgjunni, Gunna Helga rithöfundi, leikara og veiðimanni og fleiri samstarfsaðilum. Stefnan er tekin á bæjarhátíðir um land allt og með í för verða Outlander PHEV, L200 og Eclipse Cross sem gera ferðalagið skemmtilegra. Af þessu tilefni bjóðum við fjölbreytta sumarpakka að verðmæti 400.000 með öllum nýjum bílum frá Mitsubishi. Sumarpakkarnir passa vel fyrir þá sem ætla að nýta sér sumarið, enda tengjast þeir allir ferðalögum og útivist.
Verðum á Blómstrandi dögum í Hveragerði laugardaginn 17. ágúst með alls konar skemmtilegar uppákomur, meðal annars veiðikortaveiði, bakkkeppni og fleiri leikir. Þá les Gunnar Helgason uppúr nýjustu bók sinni ásamt því að stýra leikjunum.
Ferða- og veiðibílarnir Outlander PHEV og L200 verða að sjálfsögðu með í för ásamt ferðabúnaði fyrir íslenska sumarið. Gunni Helga rithöfundur og gleðigjafi verður í broddi fylkingar og það verður nóg um að vera; veiðikortaveiði, bakkkeppni Mitsubishi, verðlaunagetraun og lesið upp úr nýjustu bók Gunna - Barist í Barcelona.